Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstýrðir bílar: Engin raunveruleg lausn

Að sjálfstýrðir bílar séu einhverskonar lausn er mikil sjálfsblekking.  Það er verið að draga okkur áfram inn í bílaháð samfélög á asnaeyrunum.  Þó  að  rafmagnsbílar séu ekki heldur alvöru lausn, hafa þeir samt eitthvað fyrir sér.  En myndin "Who killed the electric car?", aðgengileg á google video,  sýnir glöggt hvers konar "hugsjónir" stjórna bíla-æðinu.  Það er þröng, rísamáttug og óheiðarleg sérhagsmunagæsla og ekkert annað.

Hvernig í ósköpunum stendur á því að fjölmiðlar, ríki,  borg og sveitarfélög, séu að ýta svo rækilega undir aukinni notkun á sóandi farartækjum ?  Hversu mörg prósent umfjöllunar er borin fram  öðrum samgöngumátum í vil ? Miklu mun minni en hlutdeild þeirra í samgöngum Íslendinga, og heimsbúa.  Um fjórðungur ferða á Höfuðborgarsvæðinu eru farnar öðruvísi en á bíl.  Þetta hlutfall er allt lágt,   en það er mjög fjarri því að þessi 25% endurspeglist í umfjöllun fjölmiðla.   Hvernig áhrif ætli þetta hafi til að skekkja samkeppnina á milli samgöngumáta ?

Ef það ætti að skekkja samkeppniuna, væri á ekki ráð að ýta undir þeim samgöngumátum sem efla heilsu og umhverfi ?   ER ekki full þörf á að bæta umhverfi okkar, sjálfbærni samfélagsins og mannkyns?  Bílar geta aldrei verið aðallausnin í samgöngumálum þéttbýlis. Staðan í dag kemur til af því að menn ýta undir því sem virðist skemmtilegt en sjá ekki afleiðingarnar.  Þá er verið að borga með bílana í stórum stíl.  Verð á bílum, eldsneyti, bílastæði, notkun vega ofl, eru engan veginn að endurspegla raunverulegan kostnað fyrir samfélaginu og heiminum. 

Stærsti vandamálin með umferðin eru ekki bilslysin, heldur hreyfingarleysið (drepur 10 sinnum fleiri í BNA og UK en bilslysin), orkusóun, heilsuspillandi mengun (drepa fleiri en bilslysin í _mörgum_ evrópskum borgum jafnvel án nagladekkja), náttúruskemmandi mengun (við lífum af náttúrunni ekki öfugt), veðurfarsskemmandi mengun, landnotkun, eyðilegging þéttbýlis og nærumhverfis, ýti undir ofvaxin neyslu okkar á vörum, sem eru í aukandi mæli framleiddar undir ámælisverð skilyrði af fátæku fólki.   

Það eru  liðin rúmlega  35 ár síðan  fyrsta alþjóðlega, stóra umhverfisráðstefnan í  Stokkhólmi 1972....


mbl.is Sjálfstýrðir bílar innan 10 ára?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rafmagnsbílar geta alveg verið lausn. Mig grunar hinsvegar að sumir öfgamenn vilji bara losna við einkafaratæki óháð lausnum, þvinga fólk í strætó eða á reiðhjól. NEI TAKK mér finnst það sjálfsagt að vera á eigin faratæki enda hentar það best hér á landi þar sem lítil þjóð dreifist vel, það mun ekki breytast allavega næstu áratugina.

Það þarf bara meiri vilja til þess að koma á breytingum og leggja meira fjármagn í þróun rafbíla. Nú þegar er búið að leysa hraðavandamálið (búið að búa til rafbíla sem komast yfir 100 km hraða og þá er í raun bara eitt stór vandamál eftir og það er að lengja vegalengdina sem hægt er að komast (þannig að það þurfi ekki eingöngu að markaðssetja þá sem borgarbíla).

Ef þessar trilljónir sem fara í hefðbundna bíla yrðu færðar yfir í rafbíla þá yrðu myndi þetta breytast hratt. 

Geiri (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 09:06

2 Smámynd: Morten Lange

Já, rafmagnsbílar eru lausn á lítill hluti af vandanum með ofnotkun bíla. En vandinn er stærri en bara "tailpipe" eða útblástur í umferðinni. Það telur rafmagnsbíla til tekna að þeir menga minna í umferðinni, eyða minna orku í heildinni, og geta á Íslandi kannski notast við nokkuð hreina og umhverfisvæna orku.  ** En umhverfis-,  landnotkunar/borgarskipulags- og heilsu vandinn með ofnotkun bíla gæti jafnvel orðið verr ef bara er einblínt á rafmagnsbíla sem lausn. Svo ekki sé talað um umferðaröryggið sem er eitt aðalmálið með að vinna með sjálfstýrðum bílum (fréttin sem ég var með athugasemd við), en er varla meiri spunnið í né áhugavert sem lausn  en nærföt Paris Hilton.  Þetta eru svipað mikilvæg frétt og fréttir af henni, en hefur  eflaust skemmtanagildi. 

Það sem er slæmt er að svoleiðis fregnir eru  gefin gaum fram yfir margt sem er miklu mikilvægari og gefa fólki falska von um raunhæfni bíla sem aðal-lausnin í umferðarmálum (líka í þéttbýli)  til frambúðar.

** Á Íslandi má etv notast við (skynsamleg notkun á fallvötnum og jarðavarma, kannski orku úr sjávarföllum, vindi,  djúpborunum). 

Morten Lange, 9.1.2008 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband