10.7.2009 | 12:13
Hvernig fór, hvernig var aðdragandinn ?
Mér finnst skrýtið munstur í þessum slysafréttum.
Tilgangur þeirra virðist vera að draga að lesendum og hræða en ekki að við lærum af slysunum.
Getur einhver frætt mig um hvort þetta standist, eða sé misskilningur hjá mér ?
![]() |
Ekið á dreng á hlaupahjóli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2009 | 10:56
www.hfr.is er með lýsingu á hjólakeppninni Reykjavík - Akureyri
Mæli með að kíkja inn á www.hfr.is
þar er hægt að fylgjast með gangi keppninnar og les sér til um fyrirkomulag, reglur, sjá kort og fleira.
Þá er að sjálfsögðu hægt að lesa um aðrar keppnir, æfingar og fleira.
~~~
Bílstjórar ættu að vera vakandi fyrir hjólreiðamenn um þessa leið í dag. En í reynd gildir það allt sumarið, því hjólreiðamenn eru mikið á ferli um þjóðvegina. Reyndar er ekki lokið fyrir það skotið að hjólreiðamenn séu á ferð hvernær sem er á árinu. Það fjölgar í hópi hjólreiðamanna og vetrarhjólreiða aukast í vinsældum.
Ábyrgðin liggur því á bílstjórum, stærri og sterkari aðilinn, að vera ávallt vakandi.
![]() |
Lengsta hjólakeppni ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2009 | 11:48
Bjarga mannslífum : hjólreiðar, almenningssamgöngur og ganga
Það er furðulegt hversu sjaldan er minnst á því að aðrir samgöngumátar en bílana hafa jákvæð áhrif á umferðaröryggi.
Skrýtnast kannski hvað varðar almenningssamgöngur því þar dugar núverandi tölfræði vel.
Þegar kemur að jákvæð áhrif göngu og hjólreiðar þar að kafa aðeins dýpra og hugsa út í eki bara hvernig sá ferðist sem slasast eða drepist, heldur hver hinn aðilinn var ( ef einhver ).
Þá ber að minnast á það að umferðaröryggi er ekki eyland. Það er fleira sem hangir á spýtunni ef maður víkkar sjóndeildarhringinn og athugar afleidd áhrif umferðaröryggisaðgerða. Ef maður skoða heilsu, umhverfi og umferð heildstætt, eins og gert er hjá WHO Europe, breytist myndin :
Í BNA drepast 40.000 í umferðinni árlega, en 400.000 vegna offitu. Mér skilst að að minnstu kosti helminginn af því getur maður tengt við kyrrsetu, og þá ætti tengingin við bílasamfélaginu að vera skýr.
WHO Europe komst að því að í tugi borga sem voru rannsakaðir deyja fleiri af völdum mengunar úr bílum en vegna bílslysa.
WHO segja líka að hjólreiðar sé einn besta leiðin til að auka lífslíkur manna.
Þetta ýtir enn frekar undir því að eflingu almenningssamganga, hjólreiða og göngu séu meðal bestu aðgerða sem hægt er að grípa til í umferðaöryggismálum. Meðal annars vegna þess að þetta séu win-win-win lausnir. Nettó hagnaður af svoleiðis aðgerðum er stór fyrir samfélaginu, því það kemur svo margt gott út úr því. Ég gæti talið upp amk tíu eða þrátíu atriði. Og hef nefnt þá flesta hér á blogginu áður.
![]() |
Bílbelti hefðu getað bjargað 36 manns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.6.2009 | 15:23
Hjólreiðabrautir til samgangna
Núna er tíminn til að setja hjólreiðabrautir í forgang í vegaframkvæmdum. Það stórvanta greiðar, skilvirkar og aðgengilegar brautir til samgönguhjólreiða, sérstaklega á milli hverfa og sveitarfélaga í þéttbýli.
Þó að hjólreiðamenn eiga fullan rétt á öllum akbrautum, þá er mjög óþægilegt að hjóla eftir stofnbrautum í þéttbýli, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Menn óttast um líf sitt og langflestir sleppa því frekar að hjóla en að velja greiðfærustu leiðirnar. Sumir finna krókaleiðir sem nýtast ágætlega til samgangna. En til að auka hjólreiða hér á landi þarf að fara áleiðis í jafna út samkeppnisforskotið sem bílarnir hafa fengið á fölskum forsendum. Það mundi spara stórfé og létta á heilbrigðiskerfinu, eins og ég hef margoft ítrekað hér á blogginu, og sjálfur Samgönguráðherra sagði líka við opnun hjólað í vinnuna. Með niðurskurðinn sem er á leiðinni í heilbrigðiskerfinu kæmi það sér mjög vel að létta á eftirspurnin eftir /þörfin fyrtir þjónustu.
Erlendir rannsóknir, meðal annars tengd Kjartan Sælensmide, sem var hjá Transportøkonomisk institutt í Noregi hafa bent til þess að hjólreiðabrautir séu með hagkvæmustu framkvæmdir sem má fara í í samgöngumálum. Og reyndar er sennilegt að enn sé verið að ofmeta þjóðarhag af vegaframkvæmdum og vanmeta þjóðarhag af aukningu í hjólreiðum.
![]() |
Einkaframkvæmd líkleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.6.2009 | 12:35
Umhverfisráðherra til fyrirmyndar ! Hjálmar ofmetnir
Um daginn var frétt í mörgum fjölmiðlum og mikið bloggað um að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði verið að hjóla til að komast á milli Alþingis og ráðuneytisins og fengið kúlu á höfuðið.
Þetta með "slysið" telst nú varla mjög fréttnæmt mundi ég segja. Aðalmálið finnst mér vera að ráðherrann hjólar til samgangna og ætlar að halda þessu áfram. Flott hjá Svandísi að ganga fyrir með góðu fordæmi og vera umhverfisvænn og stunda heilbrigðar, skilvirkar og huggulegar samgöngur.
Hefðu fleiri þjóðþekktir menn og aðrir í áhrifastöðum hjólað þá hefði það sennilega breytt viðhorfið til hjólreiða. Breytt viðhorf hefði þýtt að fleiri mundu hjóla og að aðgengi til hjólreiða mundi batna. Eins og ég hef margoft rakið áður með tilvitnanir í vísindaskýrslum og tölum frá Alþjóða heilbrigðismálastofnunina, svo dæmi séu tekin þá væri það mikill framför, og þá sérstaklega í umferðar-, heilbrigðis-, umhverfis- og fjarhagsmálum.
Meiðslin sem Svandís hlaut voru nú ekki stórvægileg að manni skilst. Daglega eða oftar er sennilega einhver bílstjóri, gangandi eða skokkandi ( hjólandi þess vegna ) á landinu sem fær svipað "alvarleg" meiðsl.
En dagblöðin og fjölmiðlar almennt eru að færa sér í átt að Séð og heyrt. Það er fræga fólkið og það er það sem er skondið eða helst sem hentar til að hneykslast yfir sem er fjallað um. Umfjöllun byggða á þekkingu um umferðarmál sést varla. Það er ekki skrýtið þótt Svandís hafi ákveðið að héðan í frá ætli hún að vera með hjálm, en ákvörðunin byggir klárlega á röngum forsendum.
Það er búið að troða þessu með hjálmana svo mikið fram að varla komist annað að þegar talað er um hjólreiðar og öryggi. En auðvitað er hið fyrsta sem beri að huga að, það að læra tækni til að koma í veg fyrir slysin. Þvínæst verða enn betri í að beita þekkinguna. Það kemur meðal annars þegar maður öðlast reynslu. Erlendar rannsóknir benda til þess að reynslan sé mjög mikilvægur þáttur í öryggi hjólreiðamanna. En hægt er að læra frá reyndari hjólreiðamönnum, og jafnvel setja í kerfi. Á Íslandi er núna hægt að læra Hjólafærni, af hjólafærnileiðbeinendum sem hafa tekið þátt í fimm daga námskeið sem var haldið í fyrra vor með Breskum kennara.
Í frétt Vísis.is sem er ögn ítarlegra kemur fram :
Ég tók of skarpt í handbremsuna og steyptist á hausinn," segir Svandís sem var að beygja af Lindargötu niður í Skuggasundið til fundar við manneskju úti í umhverfisráðuneytinu.
Sem sagt það var orsök fyrir litla slysinu, og betra stilling á bremsuna og / eða betra færni hefði getað komið í veg fyrir að hún datt.
Svo má nefna að umhverfið sem maður hjólar í bjóði stundum slysin heim. Skurðir og kantar. Bílstjórar og gangandi sem ekki taka tillit eða ekki eru vakandi. ( Já, það getur vel átt við um hjólreiðamenn líka ). Sumir stígar og gangstéttir ( sem sumir kjósa að hjóla á ) eru illa við haldnir. Þarna er möl, skurðir, vinnutæki og það eru blindhorn og allt of þröngt til að mætast og fleira í þeim dúr.
Að hamra stöðugt á hjálmanotkun en ekki tala um annað, gerir það að verki að hin atriðin fá allt of litla athygli. Eins og þetta sé ekki nóg, þá bendir mjög margt til þess að hjálmar séu verulega ofmetnir. Virkni þeirra er mun minni en okkur er látið halda.
Þeir sem hafa virkilega krufið málið, segja að hjálmar hafa hvergi sannað sér í rannsókn á stærri hópa hjólreiðamana. Ekki einu sinni í löndum þar sem hjálmanotkun hafi aukist hratt. Jú, hjálmar geta komið í veg fyrir skráma. En nei, það er ekki líklegt að nútíma hjólahjálmar hafa bjargað marga frá dauða eða örkuml. Þeir eru vitlaust hannaðir, og vitlaust prófaðir, miðað við höfuðkúpuna og heilann og hvernig slysin eru. Hönnunin gerir ekki ráð fyrir að verstu höfuðmeiðslin í umferðinni koma til vegna högg sem sem eru margfalt meiri en það sem svoleiðis hjálm geti þolað. Enda eru hjálmar bara prófaðar með því að mæla hröðun á gervihöfuð úr stáli þegar höggið kemur beint ofan á hjálminum. Og bara við uþb 20 km hraða. Þetta samsvarar falli af minna en tveggja metra hæð. En höggin í raunveruleikanum koma mjög oft á hliðunum. Og höfuðið er ekki stíft eins of stállíkanið, heldur sveiganegri og tekur þannig upp höggið. Fleiri skýrslur benda þar að auki til þess að snúningskraftar á heilann séu þeir hættulegustu, ekki höggin. Nútíma hjálmur getur sennilega aukið á snúningskraftinum við árekstra, miðað við bert höfuð. Hjálmurinn gerir höfuðið stærra, og getur "grípið" í yfirborð, sérstaklega ef yfirborðið hjálmsins sé ekki hart og slétt.
Ef hjálmurinn væri rétt stilltur hefði hann komið í veg fyrir kúluna hjá Svandísi, gefið að kúlan kom á stað sem hjálmurinn þekur. En - ekki er visst að áverkar á heilann, sem að manni skilst hafi verið engar eða afar litlar, hefðu verið minna með hjálm samt. Hver veit í alvöru ? Kannski hefði komið til lítilsháttar heilahristing ? Hjálmurinn hefði gert höfuðið stærri og þyngri og kannski meinað höfuðkúpuna um að nota sína vörn. Akkúrat varðandi hugsanlega slæm áhrif af hjálmum í svona minniháttar slysum, get ég ekki beitt fyrir mér vísindaskýrslur, en varðandi hve lítill virkni þeirra sé, tölfræðilega, jafnvel í minniháttar slysum liggja fyrir töluvert af gögnum, sem ekki syngja lof hjálmana.
Frauðplastið er hannað til að standast staðla sem nota stálhöfuð til að meta hvernig frauðplastið kremjist og dragi úr hröðun. Til að geta virkað sem best gegn höfuðmeiðslum hefði frauðplast þurft að vera mun mýkri en það sem nú tíðkast, því höfuðkúpan er mýkri en stál-höfuð. En staðlar sem miða við stállíkön krefjast harðari frauðplasts. Fræðingar sem skoðuðu hjálma eftir slys sáu nánast engin dæmi um að frauðplastið hefði kramist saman eins og tilgátan segi að það ætti að gera. Sérfræðingar um hönnun hjálma segja ennfremur að ef hjálmur brotni, þá er það merki um að hjálmurinn hafi ekki sinnt hlutverki sínu. Reiðhjólahjálmar eru hannaðir til að draga úr vægum höggum með því að frauðplastið krumpist. Þegar frauðplastið brotnar, þá er hjálmurinn ekki að draga neitt sérstaklega úr högginu.
Ég get vitnað í skýrslur í virtum vísindatímaritum, í skýrslur Evrópusambandsins, í nýlegri samantekt íhaldssama norskra sérfræðinga á vísindaniðurstöðum, til þess að styðja mál mitt um að hjálmar séu yfirleitt ofmetnir. Úttekt á skýrslunni frá Seattle 1989 sem heldur fram 85% virkni í að draga úr höfuðmeiðslum, sýnir að þessar rannsóknir voru meingallaðar. Höfundar skrifuðu nýja skýrslu þar sem sumt var leiðrétt og talan fyrir virkni lækkuð, en nánast aldrei vitna hjálmaáróðursmenn í þeirri skýrslu. Hærri talan sem var dregin tilbaka er "skemmtilegri" fyrir hjálmaáróðursmenn. ( Og svo ber að nefna að nýrri skýrslan "haldi enn í" mörgum af göllunum, til dæmis með að bera saman epli og banana )
Bresk, norsk og frönsk yfirvöld og fleiri hafa hafnað tillögur um að setja hjálmaskylda á hjólreiðamenn, með þeim rökum meðal annars að vandinn sé ekki það mikill, ekki einu sinni miðað við hlutdeild hjólreiða í umferðinni, og að jákvæð heilsuáhrif hjólreiða og frelsi hjólreiðamanna vegi talsvert þyngra en höfuðmeiðslin. Hvað íslenskum yfirvöldum gekk til þegar tillagan um hjálmaskyldu á fullorðnum var hafnað, er erfitt að vita, en visst er að þeir fengu rök með stuðningi í vísindaskýrslum viða að frá Landssamtökum hjólreiðamanna og fengju að tala við okkur. Og ónefnd opinber stofnun gaf álít (hálf óopinbert ) um að hjálmaskylda ekki væri rétta skrefið. Yfirferð á vísindagögnum hefði ekki sannfært um ágæti og nauðsýn hjálmanna. En málsmeðferðin í kring um ákvörðunartöku var hulin í þoku. Gaman væri að vita hvort vinnubrögðin sé gegnsærra undir núverandi ráðherra. ( Ef maður glöggvar í gögnin sem Alþingið hafði þegar ráðherra var gefinn leyfi til að setja reglur um skyldunotkun á hlífðarhjálma, sér maður að þetta var mjög einhliða og ansi rýrt. )
Aðrir aðilar hafa meir að segja varað við áróðri fyrir hjálma. Fyrir nokkrum árum var birt skýrslu frá European Conference of Transport Ministers (ECMT). Hún fjallar meðal annars um að varlega beri að fara í aðgerðum í umferðaröryggismálum sem kunna að draga úr hjólreiðum og göngu. Aðgerðir sem gera það að verki að meira mál verði að ganga eða hjóla, svo sem að þurfa að fara upp í loftið eða undir jörðu eða taka á sér krók til að þvera götu, eru dæmi um hindranir sem eru lagðar í vegi gangandi og hjólandi. Til dæmis í stað þess að lækka hraða bíla. Í þessari skýrslu ECMT segir að opinberir aðilar ættu ekki einu sinni að reka áróður fyrir reiðhjólahjálma. Það er meir en nóg að leyfa búðirnar sem selja þau að stunda svoleiðis.
Ég er ekki mælast til þess að fólk sem vill nota hjálm sleppi því. En að hafa ofurtrú á hjálmana gerir það að verki hjá mörgum að þau taka meiri áhættu en ella. Svo kölluð "risk compensation" hefur verið staðfest af vísindamönnum. Og ofurtrúi á hjálmana í umferðaröryggisvinnunni, gerir það að verki að annað sem er miklu mikilvægari, svo sem færni hjólreiðamanna og hraða bíla gleymist.
Það slæma með hjálma, sérstaklega í ljósi þess að virkni þeirra sé svo lélegur, er annars vegar misskilningurinn um að hjálmar séu lang-lang mikilvægasti málið í umferðaröryggi hjólreiðamanna. Hins vegar er gefið fölsk skilaboð um að hjólreiðar séu sérstaklega hættuleg samgöngumáta. En hversu margir hafa dáið í umferðinni undanfarin tíu ár á Íslandi , samkvæmt tölur Umferðarstofu ? Hátt í tvö hundruð í bílum. Um tuttugu gangandi. Enginn á reiðhjóli.
![]() |
Umhverfisráðherra hlaut höfuðhögg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.6.2009 | 15:56
Jeffrey Sachs blindur á annað hagfræðiaugað ?
Í Fréttablaðinu skrifar Jeffrey Sachs, Nóbelsverðalaunahafi í hagfræði og vinur Ólafs forseta Íslands, grein um lausnir í gróðurhúsamálum.
Hann virðist ekki búa yfir þá þekkingu sem birtist í skýrslu íslenska nefndarinnar um úrbótum í gróðurhúsamálum. Nefndin hefur séð eitt sem Jeffrey virðist staurblindur á : Það er búið að finna upp hjólið ! Búið að finna upp, þróa og selja milljörðum af reiðhjólum. Og að auka notkun þeirra er einn hagkvæmasti aðgerðin sem hægt er að fara í gróðurhúsamálum. En í samgöngumálum sér Jeffrey bara einkabílar. Hann talar um sjálfbær þróun en virðist ekki hafa skilið hugtakið til fulls. Einkabílar geta ekki orðið hluti af sjálfbærri og réttlátri lausn ( nema við meinum meirihluti jarðarinnar um þessa "lausn" )
Gröfin í frétt á heimasíðu Umhverfisráðuneytisins sýnir skýrt að hjólreiðar og göngu eiga fullt erindi inn í umræðuna :
Miklir möguleikar á að draga úr losun gróðurhúsalofttegundaBílar og akstur | Breytt 27.6.2009 kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2009 | 15:02
Ef bílar væru þjóðfélagshópur ...
Ótrúlegt umburðalyndi ríkir gagnvart bílana sem eiga þátt í að límlesta og drepa fjölda manns á hverju ári. Oft blásaklaust fólk. Annað fólk í bílum og ( þetta þykir mér sárast ) gangandi og hjólandi. Að vísu hefur engin verið _drepinn_ á hjóli síðustu rúmlega 10 árin.
En umræður um bílana er oftast á þeim nótum að þeir séu albesti vinir mannsins, nauðsýnlegur, sexy og krúttlegur. Dagblöðin eru flest með sérblöð og fullt af auglýsingum um bíla. Engar aðvaranir prýða bílana né auglýsinganna ólikt því sem gerist með tóbakið. Stundum er jafnvel reynt að plata okkur til þess að trúa að til séu eða að fram munu koma "grænir bílar". Þvílík firra.
Vegna hversu blindir menn eru, þarf ég að taka það sérstaklega fram að ég sé ekki að segja að bílar séu bara af hinu illa. Ég hef sjálfur fengið far í bíl örugglega tíu sinnum bara síðan síðustu áramót. Og skammast mín ekkert fyrir það. En umfjöllunin um bílana bendir til þess að við lifum í einhverskonar blekkingu og leiðumst áfram af tálsýni. Þegar árekstrar verða eða fólk aka út af, segjum við : Æ þetta var slys. En við ræðum ekki um samhengi hlutanna. Skort á raunsæju og heildarmynd. Svipað og blekkingin um útrásin og hlutabréfamarkaðinn sem bjargvættir.
![]() |
Ók yfir gagnstæða akrein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2009 | 00:03
Það á að taka hjólreiðar alvarlega
Niðurstaða skýrslu unnið á vegum ríkisstofnuninni Cycling England er að það þurfi bara að vanda sér, svo komi í ljós að heilmikið mun ávinnast með því að stórbæta aðgengi til hjólreiða.
Með því að undirbúa dæmið og gera þetta "rétt" má fá miklu meiri árangur og ábati en hingað til hafi verið reiknað með ( ef menn voru yfir höfuð að leiða hugann að hjólreiðum )
Hér er tengill í umfjöllun um skýrsluna :
Skýrsla Umhverfisráðuneytisins um aðgerðir í loftslagsmálum sem var gerð opinber nýlega fer "hálfa leið" með þessu og setur upp auknar hjólreiðar og göngu sem ( næst ) arðbærasti kostinn til skamms tíma.
Sjá frétt frá Umhverfisráðuneytinu
En umfjöllunin um hjólreiðar í skýrslunni er nokkuð rýr. En ef ráðuneytin mundu vanda til verka varðandi hjólreiðar, eins og Cycling England mæli með, mundi aðgerðir til að auka hlutdeild hjólreiðar lukkast mun betur, og ávinningurinn margfaldast.
( 2009-06-24 : Reyndi að lagfæra málfar , og skýrði frá að um skýrslu umhverfisráðuneytisins í loftslagsmálum sé að ræða. )
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2009 | 23:27
Slys eru ekki fréttnæm
Mér finnst skrýtið hvernig fréttamatið í fjölmiðlum sé. Getur einhver útskýrt hvers vegna mbl.is birtir í sífellu svoleiðis fréttir ?
Væri ekki nær að löggan birti fréttir af þessu tagi, og svo mundu netmiðlar benda mönnum þangað í tengsl við slys sem þess virði er að fjalla um, þannig að fólk mundu vita hvert megi leita ef menn vilja slysafréttir.
Það er allt of mikið fjallað aflitlu innsæi og dýpt um einstaka árekstrar ( "slys" ) en nánast ekkert um umferðaröryggi sem slíkt.
Og aldrei hef ég séð bent á þann sjálfsagða hlut að umferðaröryggi mundi batna ef fleiri mundu nota strætó, hjóla og ganga en færri aka bíl.
![]() |
Hringbraut opnuð á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2009 | 01:15
Áhugaverðar niðurstöður
Það er barasta áhugavert ef það sé þannig að umræður um stjórnmál bæta lestrarhæfni barna.
Og gott væri ef einhverjir aðrir mundu sannreyna niðurstöðuna, og helst með öðrum aðferðafræði.
Oft er verið að halda fram að íslenska, stærðfræði og raungreinar eða álíka kjarnafag sé það sem skipti lang mestu máli í skólastarfinu, og öllu öðru ætti að koma í öðru sæti.
Ég mundi segja að uppeldi og þjálfun í rökræður, undirstöður lýðræðis og gagnrýnni hugsun skipta ekki síður máli. Eftir hruninu eru kannski fleiri sammála þessu en áður ....
En svo "segja þessir vísindamenn okkur" sem sagt að akkúrat það að ræða samfélagsmál styrki lestrarhæfileika, og þar með kjarnafag sem móðurmálskennsla / íslenska :-)
![]() |
Umræður um stjórnmál bæta lestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hjólreiðatengt
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lýðheilsa
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfbærni og umhverfismál
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Maí 2015
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bloggvinir
-
arnid
-
kari-hardarson
-
vilberg
-
mberg
-
hrannsa
-
dofri
-
ursula
-
volcanogirl
-
loftslag
-
laugardalur
-
siggi-hrellir
-
svanurmd
-
lhm
-
larahanna
-
ragnar73
-
hjolina
-
hlynurh
-
arnith
-
neytendatalsmadur
-
bergursig
-
ingibjorgelsa
-
vefritid
-
sylviam
-
landvernd
-
thuridur
-
agustolafur
-
vest1
-
fsfi
-
morgunbladid
-
soley
-
hlini
-
photo
-
magnolie
-
arnthorhelgason
-
hildigunnurr
-
herdis
-
skidagongufelagid
-
gbo
-
arnthorla
-
malacai
-
charliekart
- kerfi
-
jevbmaack
-
raftanna
-
stjornuskodun
-
apalsson
-
birgitta
-
gp
-
hordurhalldorsson
-
hoskibui
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
roggur
-
siggimaggi
-
klarak
-
svatli
Tenglar
Þetta og hitt
Tenglar sem ekki henta annarsstaðar.
- Sosha Srinivasan aka Sosa Mammen Kona á Indlandi, sem ég kyntist í Tanzaníu
Nokkrar athugasemdir frá mér
Tenglar í athugasemdir við blogg
- Salvör spyr Hvar er andspyrnuhreyfingin ?
- Jeppaeigendur og áhættuhegðun (að meðaltali) Rætt um rannsóknir og "áhættuhliðrun"
- Trú og trúleysi (ateismi,húmanismi) Spáð í hvernig trúleysi er annað en trú
Mögulega þetta
Krækjur
- Lýðræðis-Wiki
- Hjólað í vinnuna maí 2008. Líka fyrir þá sem labba.
Tónlistarspilari
RSS-straumar
Fréttir
Gagnist etv að birta fréttir hér
WorldStreets / NewMobility
Augnablik - sæki gögn...
Bike-sharing blog
Augnablik - sæki gögn...
Copenhagenize
Augnablik - sæki gögn...
BikeBiz
Augnablik - sæki gögn...
Blogg Landssamtaka hjólreiðamanna
Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 101303
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar