Leita í fréttum mbl.is

En ekkert eða lítið gert fyrir gangandi og hjólandi ?

Að ýta undir samnýtingu bíla er góðra gjalda vert, en :

  • Að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi væri klárlega meiri virði
  • Stigurinn inn að   nýja svæði Háskólans í Reykjavík er í mjög lélegu ástandi en liggur að hluta vel í skjóli.  Þarf að sletta og breikka verulega.  Sér stígar fyrir gangandi og hjólandi
  • Það vantar örugglega upp á góða aðstaða til að læsa hjól svo vel má vera við skólann. Helst ætti að vera vaktað  svæði undir skyggni
  • hjólreiðar slær svo margar flugur í einu höggi : betri flæði, minna plássnotkun , stórvægileg sparnað fyrir einstaklinga og samfélaginu, minna mengun, öruggari umferð,  minna eyðsla á auðlindum. lausn sem stór hluti jarðarbúar gæti nýtt sér (  ólikt bílnum ) ->  sjálfbær þróun  kemur sterkt inn
  • Hvernig er aðganginn að sturtum og aðstaða til að þvo sér undir höndum við nýja H.R.  ? 
  • Hvað  gerir auglýsingamynd af bíl inn í þessa frétt ?  Talar sinu máli um hvað liggi að baki ?

mbl.is Samnýttir bílar njóti forgangs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Ótrúlega skrítið að planta þessari byggingu þarna, í þessari útivistarparadís, vitandi að það er nú þegar tölvuerð umferðarteppa á þessum stað, sem mun versna þegar skólinn tekur til starfa.

Það hefði verið skynsamlegra að finna rýmri stað og byggja stúdentaíbúðir líka, í tengslum við einhvern þjónustukjarna.  Og auðvitað huga að umferð gangandi og hjólandi, helst að gera þess háttar samgöngum hærra undir höfði í nýlegum hverfum.

Í staðinn á að banna umferð reiðhjóla á forgangsreininni og leyfa hluta af umferðinni á hinum akreinunum að nota forgangsreinina.  Þá er þetta ekkert lengur að virka sem forgangsrein, heldur bara sem hrein fjölgun akreina.

Ég er mest hissa á að ráðamenn skuli ekki taka gangstéttir undir akbrautir og banna umferð gangandi og hjólandi alfarið.  Það heitir að vera samkvæmur sjálfum sér. 

Hjóla-Hrönn, 27.8.2009 kl. 17:35

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Rafmagns og Metanbílar eru góðra gjalda verðir,en að bæta hjólreiðamenningu sem kostar smáaura miðað við margt annað vefst fyrir mönnum. Gífurlega  þjóðfélagslega arðbært að bæta hjólamenningu.Í sambandi við Háskólann í Reykjavík. Það hefði verið nær að hafa hann í Garðabæ.Báðir Háskólarnir og Landsspítalinn eru í vesturbæ-miðbæ,jafn mannaflsfrekir og þeir eru.Umferðar þunganum er því illa dreift á Reykjavíkursvæðinu.Margar góðar lóðir til annars staðar.

Hörður Halldórsson, 28.8.2009 kl. 08:39

3 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Ég skil ekki ennþá hvers vegna Háskóli Reykjavikur var plantað þarna niður. Þetta var bara umhverfisslys. Umferðin þangað mun verða til vandræða, sérlega vegna þess að bæði almenningssamgöngur og leiðir gangandi og hjólandi fólks er algjörlega hunsað.

Úrsúla Jünemann, 28.8.2009 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband